07.12.1953
Neðri deild: 34. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 272 í B-deild Alþingistíðinda. (311)

103. mál, innflutningsmál- gjaldeyrismál, fjárfestingamál o. fl.

Skúli Guðmundsson:

Ég tel þörf á því að losa um höft á útflutningsverzluninni ekkert síður en á innflutningnum. Hins vegar hef ég nú við athugun á þessari till. komizt að þeirri niðurstöðu, að hún muni ekki, eins og hún er, leysa vandann, heldur muni Alþ. þurfa að setja um þetta miklu ákveðnari og nánari fyrirmæli í lögum. Ég tel því ekki gagn að því að samþ. till. eins og hún liggur fyrir og segi nei.