07.12.1953
Neðri deild: 34. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 273 í B-deild Alþingistíðinda. (312)

103. mál, innflutningsmál- gjaldeyrismál, fjárfestingamál o. fl.

Bergur Sigurbjörnsson:

Herra forseti. Ég vildi aðeins nota þetta hlé, sem hér varð á, til að vekja athygli á því, að hér er verið að útbýta í hv. þd. frv. eftir 2. umr. í Nd., en það eru ekki nema fimm mínútur síðan þessari umr. var lokið eða tæplega það, og verður því annað tveggja að hafa gerzt, að prentun hafi gengið ákaflega fljótt fyrir sér eða að það hafi verið ráðið löngu fyrir fram, áður en málið var til umr. og atkvgr. hér í d., hvernig það mundi fara, hvernig því mundi verða breytt og hvernig það mundi verða afgr. til 3. umr.

Ég vildi vekja athygli á þessu og um leið því, að svona nokkuð er að mínu áliti ekki hægt að bjóða hv. Nd.