03.03.1954
Sameinað þing: 37. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 397 í D-deild Alþingistíðinda. (3204)
145. mál, Grænlandsmál
Forseti (JörB):
Það hefur komið fram uppástunga um að fresta þessari umr. og vísa málinu til n., og mun ég leita atkvæða um það. Hv. flm. þáltill. gerði uppástungu um að vísa málinu til allshn. Þá hefur komið fram till. frá hv. 1. þm. Eyf. um að vísa því til utanrmn. og loks kom uppástunga fram um að vísa málinu til fjvn., frá hv. þm. Barð. (Gripið fram í.) Nú greinir menn mjög á, hvort heimilt muni vera samkv. þingsköpum að vísa þessu máli til allshn., sakir þess að þingsköp mæla svo fyrir, að utanríkismálum skuli vísað til utanrmn., og það er vitaskuld rétt hermt, og ekki mun hægt að bera á móti því, að þetta er utanríkismál, sem hér er um að ræða. Skilst mér nú reyndar eftir eðli málsins, að réttast væri máske að vísa málinu til utanrmn. En þar sem hv. þm. hafa nú heyrt þær röksemdir, sem færðar hafa verið fram með og móti, til hvaða n. málið heyrir, þá vil ég nú helzt ekki grípa til úrskurðar um slíkt efni, heldur úrskurði hv. þm. það sjálfir með sínu atkvæði, til hvaða n. málinu skuli vísað, því að svo hefur það og verið löngum, að allshn. bæði í Sþ. og í deildum hefur haft margvísleg málefni til meðferðar, og ekki ljóst ætíð, undir hvaða málaflokk hin einstöku mál heyra. Þess vegna getur menn auðveldlega greint á um það, hvað réttast er. En ég ætla nú, að það þurfi ekki að koma að sök málefnisins vegna, til hvorrar n. málið fer, hvort það fer í allshn. eða í utanrmn., málið heyri nú undir aðra hvora þessa n., en síður fjvn., eins og ég hef áður gert grein fyrir. Þess vegna verður það borið undir atkv. Verða till. bornar upp í þeirri röð, sem þær hafa komið fram, og kemur þá fyrst uppástunga hv. flm. um, að málinu verði vísað til hv. allshn.