02.12.1953
Sameinað þing: 20. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 466 í D-deild Alþingistíðinda. (3305)
55. mál, bifreiðakostnaður ríkisins og opinberra stofnana
fyrirspyrjandi (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. 15. okt. var útbýtt hér í Sþ. fsp. frá mér um bifreiðakostnað ríkisins og opinberra stofnana. Þessi fsp., sem samkv. þingsköpum á að svara viku síðar, var þá tekin út af dagskrá. Hún hefur verið á dagskrá á hverjum fundi Sþ. síðan, en ávallt verið tekin út af dagskrá.
Ég vildi gjarnan mælast til þess við hæstv. forseta, að hann beindi því til hæstv. ríkisstj., að hún hraðaði þessari athugun, sem hér er um að ræða, svo sem mest má verða. Mér þykir að vísu vænt um það, ef hæstv. ríkisstj. hyggst að svara henni sem allra ýtarlegast. Það tel ég ánægjuefni. En ég trúi því varla, að það þurfi að taka jafnmikinn tíma og í þetta hefur farið. Hér er um að ræða hálfan annan mánuð, sem ríkisstj. hefur haft til athugunar, og svo umfangsmikið hefði ég ekki talið bílahald ríkissjóðs, að það þyrfti að taka sex vikur að komast til botns í því, hvað sú útgerð eiginlega kostaði. En ég ítreka þau tilmæli til hæstv. forseta, að hann beini því til hæstv. ríkisstj., að þessari athugun verði hraðað svo sem verða má og helzt að hún komi til svars á næsta fundi í sameinuðu Alþingi.