22.10.1953
Sameinað þing: 10. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 517 í D-deild Alþingistíðinda. (3361)

216. mál, bátagjaldeyrir

Forsrh. (Ólafur Thors):

Eins og hv. þm. gat um, er fsp. í tvennu lagi. Annars vegar: Hve miklu nam bátagjaldeyrisálagið á árinu 1952? Eftir upplýsingum, sem rn. hefur aflað, nam það 58412004 kr. — Hin fsp., þ. e. annar liður, er um það, hver var kostnaður á sama tíma við framkvæmd reglnanna um bátagjaldeyri. Þar til svara ég því, að ríkið hefur ekki haft neinn kostnað af þeirri innheimtu.