09.11.1953
Efri deild: 17. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1718 í B-deild Alþingistíðinda. (3612)

Fjarvistir þingmanna

forseti (GíslJ):

Ég vil að gefnu tilefni leyfa mér að tilkynna hv. þm. Seyðf., að á síðasta fundi var haft hér nafnakall, vegna þess að svo margir voru fjarverandi, að ekki var hægt að setja fund, og var hann einn af þeim, sem voni fjarverandi og hafði hvorki boðað veikindaforföll né fengið leyfi. Ég vildi mega óska eftir því, að hann léti tilkynna fjarveru, ef nauðsynlegar ástæður liggja fyrir. (Gripið. fram í.) Það hafa engar tilkynningar komið um það til deildarinnar.