23.03.1954
Efri deild: 66. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1719 í B-deild Alþingistíðinda. (3617)
Vélræn upptaka á þingræðum
dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Ég var því miður ekki kominn við setningu fundarins, en hæstv. forseti hefur sýnt mér þá vinsemd að lofa mér að lesa yfir grg., sem hann hefur samið út af þeirri athugasemd, sem ég bar hér fram um hljóminn í hv. d. Ég sé af grg., sem er mjög röggsamleg eins og við var að búast, að hann hefur að nokkru leyti misskilið mínar athugasemdir, vegna þess að það var ekki fyrst og fremst um sjálft segulbandið, sem ég spurði, heldur hljóminn innan deildarinnar, hvort hann væri orðinn svo skakkur, að ekki heyrðist á milli borða og sérstaklega upp í blaðamannastúkuna það, sem sagt væri hér niðri, þannig að það heyrðist vera sagt nei uppi í þeirri stúku, þegar sagt væri já hér niðri í ræðustólnum.