13.10.1953
Sameinað þing: 6. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1723 í B-deild Alþingistíðinda. (3626)

Rannsókn kjörbréfa - varamenn taka þingsæti

Frsm. (Einar Ingimundarson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur athugað kjörbréf hv. þm. Str., Hermanns Jónassonar, og ekkert fundið athugavert við það, engar kærur hafa borizt nefndinni út af kosningu þessa hv. þm., og leggur því n. einróma til, að kjör hans verði tekið gilt.