20.10.1953
Neðri deild: 8. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1724 í B-deild Alþingistíðinda. (3634)

Mannaskipti í nefndum

forseti (SB):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf :

„Hér með er þess óskað, að Alþfl. fái að skipta um menn í tveimur nefndum deildarinnar, þannig: Emil Jónsson taki sæti Eggerts Þorsteinssonar í sjútvn. og Eggert Þorsteinsson sæti Emils Jónssonar í iðnn. Tilmæli þessi eru og borin fram að ósk beggja hlutaðeigenda.

Alþingi, 19. okt. 1953.

F. h. þingflokks Alþýðuflokksins,

Haraldur Guðmundsson .“

Þetta tilkynnist hér með, og er að sjálfsögðu orðið við óskum hv. formanns þingflokks Alþfl. um þetta efni.