18.12.1953
Neðri deild: 41. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1734 í B-deild Alþingistíðinda. (3663)

Þingfrestun og setning þings að nýju

forseti (SB):

Þá er dagskrá þessa fundar þrotin. En þar sem þetta verður væntanlega síðasti fundur hv. þd. fyrir hátíðar, vil ég óska hv. þdm. gleðilegra jóla og nýárs, um leið og ég þakka góða samvinnu við mig sem forseta, það sem af er þessu þingi. Ég óska utanbæjarþingmönnum góðrar heimferðar og góðrar heimkomu, og öllum hv. þm. óska ég árs og friðar.