05.02.1954
Sameinað þing: 31. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1736 í B-deild Alþingistíðinda. (3670)

Þingfrestun og setning þings að nýju

forsrh. (Ólafur Thors):

Á ríkisráðsfundi 30. f. m. var gefið út svo hljóðandi forsetabréf:

„Forseti Íslands gerir kunnugt:

Ég hef ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi, 73. löggjafarþing, skuli koma saman til framhaldsfunda föstudaginn 5. febr. 1954, kl. 13.30.

Gert í Reykjavík, 30. jan. 1954.

Ásgeir Ásgeirsson.

Ólafur Thors.“

Forsetabréf um, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.“

Samkvæmt þessu hefjast nú framhaldsfundir Alþingis, 73. löggjafarþings.