13.04.1954
Neðri deild: 95. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1738 í B-deild Alþingistíðinda. (3676)

Starfslok deilda

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég vil leyfa mér — og ég veit, að ég geri það fyrir hönd allra hv. þdm. — að þakka góð orð og góðar óskir í okkar garð. Ég vil enn fremur leyfa mér að þakka hæstv. forseta fyrir hans röggsömu fundastjórn og fyrir gott samstarf við okkur þdm. og óska honum þess, að við megum sjá hann aftur heilan í haust, þegar við komum aftur til starfa. Og ég vil leyfa mér að biðja hv. þm. um að taka undir árnaðaróskir mínar til hæstv. forseta með því að rísa úr sætum. — [Deildarmenn risu úr sætum.]