10.12.1953
Sameinað þing: 24. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 471 í B-deild Alþingistíðinda. (446)

1. mál, fjárlög 1954

Haraldur Guðmundsson:

Herra forseti. Enda þótt ég telji afar varhugavert að veita ríkisstj. 15 millj. kr. lántökuheimild og útlánaheimild án nokkurra skilyrða eða fyrirmæla um, hvernig þessu fé skuli varið, mun ég þó vegna þeirra nauðsynja, sem fyrir hendi eru 1 þessu efni, segja já.

22. gr., svo breytt, samþ. með 27 shlj. atkv.

23.–24. gr. samþ. með 31 shlj. atkv. Fyrirsögn frv. og fyrirsagnir kafla þess samþ. án atkvgr.

Frv. vísað til 3. umr. með 38 shlj. atkv.