15.12.1953
Sameinað þing: 26. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 595 í B-deild Alþingistíðinda. (472)

1. mál, fjárlög 1954

Forseti (JörB):

Þá er 2. umferð lokið, og hefst nú 3. umferð. Ræðumenn hafa farið nokkuð yfir í þessum umferðum. En þar sem svo er ástatt, að ekki skeikar mjög miklu á milli flokka um ræðulengd, þá hygg ég, að réttast sé að sleppa þeim minútum, sem fram yfir eru hjá flokkunum, og er þá, eins og upphaflega var ákveðið, ætlazt til, að síðasta umferðin verði aðeins 10 mínútur fyrir hvern flokk. En ég vil biðja hv. ræðumenn að gæta þess nú stranglega að fara ekki yfir þann tíma.

Hv. 11. landsk. þm., Lúðvík Jósefsson, tekur til máls og talar af hálfu Sósfl.