15.12.1953
Neðri deild: 39. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 656 í B-deild Alþingistíðinda. (549)

13. mál, vátryggingasamningar

Frsm. (Eggert Þorsteinsson):

Herra forseti. Frv. það til laga um vátryggingarsamninga, stjórnarfrv., sem hér liggur fyrir á þskj. 13, hefur allshn. yfirfarið og rætt. N. leitaði umsagnar 7 tryggingarfélaga, og sendu 5 þeirra skrifleg svör, er öll voru í aðalatriðum samhljóða og meðmælt því, að frv. yrði samþ., og telja það til mikilla bóta frá hinum eldri lögum. — Að athuguðu máli leggur n. einróma til, að frv. verði samþ. óbreytt, eins og frá greinir í nál. á þskj. 303.