31.03.1954
Neðri deild: 74. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 751 í B-deild Alþingistíðinda. (705)

178. mál, útsvör

Frsm. (Skúli Guðmundsson):

Herra forseti. Fjhn. hefur haft þetta frv. til meðferðar, og eins og fram kemur á þskj. 598, leggur n. til, að það verði samþ. Þar er þess getið, að stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga hafi átt tal við nm. um málið, og síðan nál. var gefið út hefur borizt erindi um það frá þeirri stofnun, sem n. mun taka til athugunar fyrir 3. umr. — Tveir hv. nm., hv. 5. þm. Reykv. og hv. 1. landsk., hafa skrifað undir nál. með fyrirvara, sem þeir munu gera grein fyrir, ef þeim þykir ástæða til.