23.10.1953
Efri deild: 8. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 39 í B-deild Alþingistíðinda. (8)

61. mál, alþjóðaflugþjónusta

Frsm. (Bernharð Stefánsson):

Herra forseti. Mér kemur nú þessi ræða síðasta ræðumanns dálítið á óvart. Að vísu er það alveg rétt, að þessu var hreyft í fjhn., að það væri æskilegt, að fyrir lægju upplýsingar um lánskjör og annað, áður en málið væri afgreitt. Samkv. ósk n. útvegaði ég þessar upplýsingar og gat um öll þessi atriði í minni framsöguræðu við 2. umr. hér. Það er líklega, að hv. þm. hafi ekki verið kominn í d., þegar ég gerði það, en það vill nú svo til, að ég hef hér bréf, sem upplýsir þetta töluvert rækilega, og mér er ánægja af að lána hv. þm. þetta bréf.