07.10.1953
Neðri deild: 4. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 57 í B-deild Alþingistíðinda. (88)
6. mál, gengisskráning
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Í þessu frv. er lagt til, að lögfestar verði sömu reglur um greiðslu verðlagsuppbótar á laun opinberra starfsmanna og gilt hafa að undanförnu og að það gildi til 1. des. 1954, þ.e.a.s., eitt ár frá 1. des. n.k. að telja.
Ég leyfi mér að leggja til, að þessu máli verði vísað til hv. fjhn. að lokinni umræðunni.