07.10.1953
Neðri deild: 4. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 59 í B-deild Alþingistíðinda. (90)
6. mál, gengisskráning
Gylfi Þ. Gíslason:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð, ekki til þess að ræða efni þessa frv., sem er augljóst, heldur til þess að vekja athygli á því, að þetta frv. ber í upphafi sínu dálítið einkennilegt vitni um vinnubrögð hæstv. fyrrverandi ríkisstj. á undanförnum þingum. Þm. hafa kannske ekki veitt því athygli, hvað þetta frv. heitir. Heiti þess er þetta: „Frv. til l. um breyt. á l. nr. 16/1953, um breyt. á l. nr. 105/1951, um breyt. á l. nr. 117/1950, um breyt. á 4. nr. 22/1950, um gengisskráningu, launabreytingar, stóreignaskatt, framleiðslugjöld o.fl., og á l. nr. 9/1951, svo og l. nr. 70/1952.“
Þetta eru, að mér telst til, ein sjö eða átta lög, sem hér er verið að breyta með þrem línum. Mér er spurn: Hvað eiga svona vinnubrögð að þýða? Hvernig stendur á því, að hæstv. ríkisstj. hefur ekki getað, eða starfsmenn hennar, gengið öðruvísi frá undirbúningi mála en þannig, að slíkt og annað eins og þetta skuli þurfa? Þetta ber vinnubrögðum hæstv. ríkisstj. — ekki núna, heldur á undanförnum tveimur, þremur þingum, þegar þessi lagasetning hefur átt sér stað, þvílíkt vitni, að það er rétt og sjálfsagt að vekja athygli á því, til þess að reynt verði að komast hjá þvílíkum skrípafyrirsögnum á lögum eða frv.