15.04.1955
Neðri deild: 72. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 869 í B-deild Alþingistíðinda. (1015)

3. mál, ríkisborgararéttur

Björn Ólafsson:

Herra forseti. Ég vildi mælast til þess, að hv. þm., sem lagt hafa fram brtt. við frv. á þskj. 474, 495, 498 og 509, tækju þær aftur til 3. umr., og mun þá n. taka till. til athugunar og gera sínar till. í sambandi við þessar brtt., ef henni finnst ástæða til.