11.11.1954
Neðri deild: 16. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 53 í B-deild Alþingistíðinda. (106)

7. mál, veitingaskattur

Frsm. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Fjhn. er sammála um að mæla með samþykkt þessa frv. Sjálfur vil ég segja, að þótt fyrr hefði verið, hefði mátt samþ. þetta, og hef ég verið flm. að því hér á fyrri þingum, að veitingaskatturinn yrði fyrr afnuminn, og er mér því sérstök ánægja að mæla með samþykkt frv.