26.04.1955
Neðri deild: 78. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1095 í B-deild Alþingistíðinda. (1242)

183. mál, húsnæðismál

Sigurður Bjarnason:

Þessari reglu, sem brtt. á að lögfesta, hefur verið fylgt við úthlutun smáíbúðalána undanfarið. Í trausti þess, að henni verði fylgt, og ekkert hefur komið fram um annað en að það sé ætlunin, að henni verði fylgt í framtíðinni, þá segi ég nei.