06.05.1955
Efri deild: 83. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1134 í B-deild Alþingistíðinda. (1260)

183. mál, húsnæðismál

Frsm. minni hl. (Haraldur Guðmundsson):

Herra forseti. Mót von minni voru allar þær till. til lagfæringar á þessu frv., sem ég lagði fram, felldar hér í þessari hv. deild. Mér þykir þó ekki rétt þrátt fyrir þessa málsmeðferð að snúast gegn frv. Ég játa, að það er nokkur úrbót fyrir vissa flokka manna, en get ekki fallizt á, hversu lítið — að ég ekki segi ekkert — tillit er tekið til þeirra, sem mesta þörfina hafa fyrir aðstoð í þessum efnum, og mun því ekki heldur greiða frv. atkv.