25.11.1954
Efri deild: 21. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1224 í B-deild Alþingistíðinda. (1563)

66. mál, dýralæknar

Frsm. (Sigurður Ó. Ólafsson):

Herra forseti. Mér finnst sjálfsagt að verða við þessum tilmælum hv. 1. þm. Eyf. (BSt). Þetta er 2. umr. málsins, og til þess að tefja ekki neitt framgang þess nú, finnst mér rétt að láta það ganga áfram og ljúka þessari umræðu. En ég mun sjá til þess, að ábending hv. þm. verði athuguð í n. fyrir 3. umr. og þá, eins og hv. þingmaður stakk upp á, haft við hann samráð um það, hvað þetta atriði snertir.