11.02.1955
Neðri deild: 44. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1241 í B-deild Alþingistíðinda. (1608)

127. mál, leigubifreiðar í kaupstöðum

Jónas Rafnar:

Herra forseti. Mér láðist að geta um það áðan, að ég hef fengið munnleg tilmæli frá stjórn stéttarfé,lags bifreiðarstjóra á Akureyri um að fá þá breytingu á frv., að heimildin næði til Akureyrar einnig. En ég lít þannig á málið, að það sé ástæðulaust að vera að binda þetta endilega við eitt eða tvö bæjarfélög, heldur eigi hér að vera um almenna heimild að ræða, og því aðeins hef ég flutt þessa brtt.