28.04.1955
Efri deild: 75. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1562 í B-deild Alþingistíðinda. (1802)

178. mál, bæjarstjórn í Kópavogskaupstað

Forseti (GíslJ):

Ég vil út af ummælum hæstv. ráðh. í sambandi við málþóf leiðrétta það hér, sem ég veit að kemur til af því, að hann á ekki sæti hér í þessari hv. d., að hér hefur ekki verið haldið uppi málþófi af hv. 6. landsk. þm. í sambandi við þetta mál. Hann hefur að öllu leyti farið eftir ósk minni sem forseta og haldið sig innan þeirra takmarka, sem ákveðið er í þingsköpum. Og ég veit, að þetta er aðeins vegna þess, að hæstv. ráðh. á sæti í annarri deild og hefur orðið var við málþóf þar í þessu máli.