28.04.1955
Efri deild: 75. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1562 í B-deild Alþingistíðinda. (1803)

178. mál, bæjarstjórn í Kópavogskaupstað

Forsrh. (Ólafur Thors):

Ég vil aðeins leyfa mér að beina því til herra forsetans, að ég hef það eftir honum, að hv. þm. hafi talað í þrjá klukkutíma um þetta mál, Ef herra forsetanum finnst þetta ekki nóg til þess að megi kalla það málþóf, þá er hans þolinmæði meiri í forsetastóll en á flokksfundum hjá okkur.