18.04.1955
Efri deild: 70. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1649 í B-deild Alþingistíðinda. (1937)

192. mál, Dísastaðir í Breiðdal

Flm. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Ég er því miður ekki svo vel að mér, að ég geti gefið upplýsingar um þetta atriði nú, og treysti mér illa til að afla þeirra á meðan þessi 1. umr. stendur. Hins vegar vænti ég, að það sé hægt að fá þessar upplýsingar, áður en málið hefur fengið afgreiðslu í hv. nefnd og kemur hér til 2. umr.