25.02.1955
Neðri deild: 53. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 200 í C-deild Alþingistíðinda. (2172)

81. mál, útsvör

Frsm. (Einar Ingimundarson):

Herra forseti. Allshn. hefur athugað frv. það, sem hér er nú til umr. Leggur meiri hl. n. til, að frv. verði samþykkt eins og það liggur fyrir, en einn nm., hv. 3. þm. Reykv. (BÓ), kveðst vera andvígur frv. Einn nm., hv. 4. landsk. (GJóh), var ekki viðstaddur vegna lasleika, þegar frv. var afgr. úr n., en hann hafði áður tjáð sig fylgjandi því, enda er hann einn af flm. þess.