01.03.1955
Neðri deild: 54. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 240 í C-deild Alþingistíðinda. (2227)
159. mál, prestjarðir
Flm. (Jón Pálmason):
Herra forseti. Þetta frv. á þskj. 404 er flutt af mér og hv. þm. A-Sk. (PÞ) eftir beiðni biskupsins og er í samræmi við samþykktir, sem gerðar hafa verið á prestastefnu Íslands og í kirkjuráði Íslands.
Þetta frv. felur það í sér að ákveða, að til þess að mega skipta prestssetursjörðum samkvæmt lögum frá 16. febr. 1953, þurfi fyrir að liggja samþykki frá þeim kirkjunnar yfirvöldum, sem hlut eiga að máli og eru viðkomandi sóknarprestur og sóknarnefnd, prófastur viðkomandi héraðs og biskup. Okkur flm. finnst þetta eðlileg krafa, það eigi að vera um þetta gott samkomulag, og væntum þess, að þetta frv. geti fengið greiðan gang hér í gegnum hv. deild.
Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um efni þessa máls meira umfram það, sem fram er tekið í grg. — Það mætti segja, að það gæti orkað tvímælis, hvort þetta eigi að skoðast landbúnaðarmál eða kirkjumál og því hvort það ætti frekar að fara í landbn. eða menntmn., en ég vil nú leggja til, að að þessari umr. lokinni verði þessu frv. vísað til hv. landbn.