03.03.1955
Efri deild: 54. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 341 í C-deild Alþingistíðinda. (2318)

15. mál, vegalög

Forseti (GíslJ):

Út af upplýsingum frá hv. formanni samgmn., sem ég þakka honum fyrir, vil ég taka það fram, að ég mun ekki sjá mér fært að geyma þetta mál lengur en í lengsta lagi til fimmtudags í næstu viku og mun þá taka málið á dagskrá, ef ekki koma fram sérstakar beiðnir um að fresta málinu eða fyrir liggja aðrar orsakir.

Málið hefur legið í n. síðan 25. okt., vegamálastjóri hefur verið við störf síðan á nýári, og ég sé enga ástæðu til þess að geyma málið lengur, en mun hins vegar eftir þessum upplýsingum ekki taka málið á dagskrá þangað til.