17.11.1954
Sameinað þing: 15. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 61 í D-deild Alþingistíðinda. (2434)

68. mál, gistihús í landinu

Frsm. (Eiríkur Þorsteinsson):

Herra forseti. Þessa till. til þál. um gistihús í landinu hefur allshn. tekið til athugunar og afgreitt með lítils háttar innskoti, þ. e. að Ferðaskrifstofa ríkisins verði kvödd til ráða með ríkisstj. til að ráða fram úr málunum.

Allshn. mælir með, að till. verði samþ. svo breytt. Þakka ég hv. meðnm. mínum fyrir afgreiðslu á þessu máli, sem ég er flm. að, og vænti góðs af afgreiðslu málsins á Alþingi.