02.12.1954
Sameinað þing: 21. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 63 í D-deild Alþingistíðinda. (2439)

68. mál, gistihús í landinu

Frsm. (Eiríkur Þorsteinsson):

Herra forseti. Ég fyrir mitt leyti get alveg fallizt á, að þessi smábreyting falli niður, út af fyrir sig, því að ég er sammála hv. 5. þm. Reykv. um, að það gæti verið alveg eins ástæða til að leita þá til margra fleiri aðila, en ég tel, að það sé þá ríkisstjórnarinnar að leita til þeirra aðila og hafa þá í samráði, þegar hún gerir sínar ráðstafanir eða hefst handa um málið.