20.04.1955
Sameinað þing: 53. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 238 í D-deild Alþingistíðinda. (2583)

148. mál, nýjar atvinnugreinar

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég hafði við fyrri umr. þessa máls borið fram á þskj. 399 brtt. við þessa till. til þál. Nú hefur öll hv. fjvn. orðið sammála um að flytja brtt., þar sem m. a. er á ýmsan hátt tekið tillit til ýmissa ábendinga, sem fólust í minni, og annarra ábendinga, sem fram komu. Ég vil þess vegna leyfa mér að taka til baka brtt. mína á þskj. 399 og láta í ljós ánægju mína yfir þeirri till., sem hv. fjvn. hefur orðið öll sammála um, og vona, að þeirri mþn., sem kosin yrði, mætti auðnast að starfa í anda þeirrar till. og þeirrar ræðu, sem hv. frsm. fjvn. flutti hér áðan.