13.04.1955
Sameinað þing: 51. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 281 í D-deild Alþingistíðinda. (2632)

98. mál, Geysir

Forseti (JörB):

Ég vil beina því til hv. 1. flm., til þess að ekki komi til ágreinings síðar meir út af þessu, hvort hann vill ekki bera fram viðaukatill. við brtt. nefndarinnar, að kostnaðurinn við rannsóknirnar greiðist úr ríkissjóði. Sé það vilji þingsins. er það útlátalaust að samþ. slíka till. Ég veit ekki, hvort hv. 1. flm. vill bera fram slíka till. (PO: Ég óska eftir, að málið sé tekið út af dagskrá.)