27.10.1954
Sameinað þing: 7. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 306 í D-deild Alþingistíðinda. (2690)

46. mál, strandferða og flóabátar

Bergur Sigurbjörnsson:

Herra forseti. Við þessa atkvgr. um að vísa málinu til nefndar vil ég leyfa mér að taka það fram, að ég er málinu í sjálfu sér — till., sem fyrir liggur og efni hennar — algerlega andvígur og mundi greiða atkvæði gegn henni við endanlega afgreiðslu málsins. Hins vegar tel ég enga ástæðu til þess að neita þessu máli eða öðrum um þinglega afgreiðslu, og þess vegna segi ég já við að vísa málinu til 2. umr. og nefndar.