04.05.1955
Sameinað þing: 56. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 406 í D-deild Alþingistíðinda. (2734)
116. mál, raflýsing vegarins milli Hafnafjarðar og Reykjavíkur
Ingólfur Flygenring:
Herra forseti. Ég vil þakka hv. fjvn. fyrir þessa afgreiðslu, svo langt sem hún nær.
Ég skil afstöðu n., að það er máske erfitt að gera út um málið á þennan hátt. En málinu er vísað til ríkisstj., og það mætti kannske taka það öðrum tökum en er gert þarna, þ. e. a. s., að það mætti taka fyrir skemmri kafla vegarins í einu, sem alls ekki yrði mjög tilfinnanlegt.
Um það, hver á að borga þetta, getur n. ekkert sagt. Hún hefur ekki getað komizt að niðurstöðu um það, þrátt fyrir till., sem fylgdu með umsögn rafmagnsstjórans, eða ábendingar réttar sagt, því að sá kafli vegarins, sem reynzt hefur hættulegastur, er í landi Garðahrepps. Það er ekki hægt að ætlast til þess, að Garðahreppur kosti þessa götulýsingu, því að Garðhreppingar nota þennan veg allra minnst. Það mætti þá alveg eins segja, að allir íbúar á Reykjanesi, allir fyrir sunnan Reykjavík, ættu að gjalda þetta sameiginlega, og þá er nú komið nærri ríkissjóðnum, hvort hann á ekki að taka þátt í því að einhverju eða öllu leyti, því að það má ekki við svo búið standa, að þessi vegur sé ólýstur eins og hingað til, því að þar eru slys, eitt eða fleiri, á hverju ári.