07.12.1954
Sameinað þing: 23. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 228 í B-deild Alþingistíðinda. (298)

1. mál, fjárlög 1955

Forseti (JörB):

Það mun hafa orðið samkomulag um að fresta hinum svokölluðu eldhúsumræðum við þessa umr., sem þó er venja og þingsköp ætlast til, og er ætlunin, að slík umr. fari fram síðar. Ég vil því leita afbrigða frá þingsköpum um þessa frestun.