16.02.1955
Sameinað þing: 36. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 691 í D-deild Alþingistíðinda. (3059)

142. mál, mótvirðissjóður

Viðskmrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Sem svar við fsp. þeirri, er hv. 2. þm. Reykv. flytur hér á þskj. 337, er því til að svara, að ekkert fé hefur verið greitt úr mótvirðissjóði til ameríska sendiráðsins, hvorki fyrr né seinna.