16.02.1955
Sameinað þing: 36. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 691 í D-deild Alþingistíðinda. (3060)
142. mál, mótvirðissjóður
Fyrirspyrjandi (Einar Olgeirsson):
Herra forseti. Ég bjóst nú hálfpartinn við, að hæstv. ríkisstj. væri ekki vel við að gefa upplýsingar um þá greiðslu, sem fram hefur farið í sambandi við framlögin, sem mótvirðissjóðurinn er framlag Íslands á móti. Eins og vitað er, eru 5% af þeim svokölluðu gjöfum, sem Ísland fékk frá Bandaríkjunum á sínum tíma, greidd til ameríska sendiráðsins í Rvík og dragast þannig frá því, sem verður í mótvirðissjóðnum. Ég hafði hugsað mér að fá upplýsingar um, hvað þetta væri nákvæmlega, þessi upphæð. Ég veit, að hún muni vera í kringum 20 millj. kr., vegna þess að um 400 millj. kr. verðmæti var þarna um að ræða, og 5% af því átti að greiða á þennan hátt. En ég vildi gjarnan vita, hvernig þessar greiðslur hefðu skipzt, hvað mikið hefði verið greitt á hverju ári, og ég skil það vel, að hæstv. ríkisstj. vill gjarnan hafa nokkur undanbrögð um þetta.
Það má nú vera, að það verði ef til vill reynt að orða spurningarnar öðruvísi, svo að hæstv. ríkisstj. kæmist síður hjá því að svara og gefa upplýsingar um þetta, en hitt er þó aðalatriðið, að það komi fram, um hvaða upphæð þarna er að ræða. Því hefur nefnilega mikið verið haldið á lofti, hve mikið Íslendingum hafi verið gefið, þó að minna hafi verið talað um skilyrðin í sambandi við það, en aldrei hitt, hvert 5% af því, sem Íslendingar lögðu fram, hefur runnið. — Ég ætla svo ekki að orðlengja neitt um þetta, en mun sjá um, að þessar upplýsingar komi samt að lokum fram.