07.02.1955
Sameinað þing: 33. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1991 í B-deild Alþingistíðinda. (3207)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.
Jóhann Jósefsson:
Herra forseti. Ég skal ekki tefja lengi, en á síðasta fundi voru liðnar, ég segi ekki leyfðar, nokkrar umræður um verkfallsmál, sem ég veit að eiga ekki heima í umræðum utan dagskrár. En af því tilefni, að hv. 9. landsk. þm. hélt hér alllanga tölu um ástandið í Vestmannaeyjum og gaf þar þær upplýsingar. að hér væri ekki um venjulega kaupdeilu að ræða, heldur að mér skildist eitthvað það, sem sjómenn væru þegar búnir að fá sér tildæmt, þá vildi ég lýsa yfir því, að þetta er mjög rangt með farið. Ég skal ekki fara neitt út í deiluna út af bátagjaldeyrinum né heldur ræða um hæstaréttardóminn, en þó að hvoru tveggja því sé algerlega sleppt, voru ályktanir hv. 9. landsk. a. m. k. mjög villandi. Þá skal ég benda á það, að deilan er líka kjaradeila, þar sem sjómenn hafa krafizt m. a. breyttra hlutaskipta sér í hag, en útgerðinni í óhag, svo að það er algerlega rangt með farið, að þessi deila sé nokkuð annars eðlis en venjulegar deilur um kaup og kjör.
Ég veit ekki, í hvaða tilgangi hv. 9. landsk. hefur viljað nota tíma utan dagskrár í þinginu til að gefa þessar villandi upplýsingar, og skal að þessu sinni ekki leiða að þeim neinar getur, þótt hægt væri. En ég vildi ekki, að það stæði ómótmælt í þingtíðindunum, að hann leyfði sér að fara hér fram með villandi og rangar frásagnir um það alvarlega ástand, sem ríkir í Vestmannaeyjum.