23.03.1955
Sameinað þing: 48. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1998 í B-deild Alþingistíðinda. (3219)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Það er aðeins örstutt. Með fyrirspurn minni vildi ég fyrst og fremst vekja athygli á því hættumáli, sem hér er á ferðinni. Mér er ljóst, að það verður án efa leikinn sá leikur af þeim aðilum, sem nú stríða jafnhart og raun ber vitni um, að þessi kennir hinum um og hinn kennir þessum um, og blöðin koma eflaust til með að taka þátt í þeirri deilu. En fari svo, að ofan á viku eða hálfsmánaðar verkfall verði að koma til allsherjarstöðvunar á öllum bátaflota landsmanna, vegna þess að sá olíufarmur, sem nú er á leiðinni til landsins, verði seldur til annarra landa, og stöðvunar á öllum togaraflota landsins, vegna þess að þeim 8000 tonnum af brennsluolíu, sem togaraflotanum eru ætluð, verði ráðstafað annað, þá er vitanlega um margfalt tjón af verkfallinu að ræða fyrir landsmenn sem heild. Því álít ég, að það sé heilög skylda hjá ríkisstj. að kynna sér þetta mál til hins ýtrasta og reyna að hafa þau áhrif, sem ríkisstj. getur, til þess að koma í veg fyrir þetta mikla tjón.
Hitt er svo annað mál, sem ég skal ekki blanda mér inn í að þessu sinni, að gera tillögur um það, hvernig er hægt að leysa málið, og ég vil ætlast til þess, að ríkisstj. hafi þar ýmsa möguleika, jafnvel aðra möguleika en þá að leita uppi einhverja þjófalykla til þess að komast í skrár annarra, eins og hér hefur verið stungið upp á. En ég held, að það ættu að vera leiðir til að koma í veg fyrir þetta, og væntanlega tekst svo líka að leysa þetta verkfall, áður en langt um liður.
Mér þótti það að nokkru leyti einkennilegt, að fram kom hjá hæstv. forsrh., að hann hefði ekki gert sér grein fyrir þessu að öllu leyti. Ég hef það m. a. beint frá þeim, sem eiga nú að sjá um flutning á þessari olíu, að það sé ekki aðeins togaraflotinn, sem er hætt við því að stöðvast, heldur einnig allur bátaflotinn. Ég hygg, að olíufélögin muni hafa tilkynnt það, eftir því sem þau láta uppi, að þau muni einnig selja þann olíufarm, sem er á leiðinni til landsins og er ætlaður öllum bátaflotanum. Ég held því, að það sé aðkallandi nauðsyn, að ríkisstj. kynni sér þetta mál og reyni að fá á því eðlilega lausn.