20.04.1955
Sameinað þing: 53. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 2049 í B-deild Alþingistíðinda. (3253)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.
Einar Olgeirsson:
Ég vildi leyfa mér að bera fram eina fsp. til hæstv. forseta. — Þann 17. marz tók þingflokkur Sameiningarflokks alþýðu, Sósíalistaflokksins, á móti bréfi undirrituðu af hæstv. forsetum þingsins, Sþ., Ed. og Nd. Því bréfi fylgdi allmikið bréf frá ríkisstj., frá hæstv. utanrrh., og með því nokkur fylgibréf frá sendiherra Íslands í Sovétríkjunum, þar sem m. a. var yfirlýsing frá æðsta ráði Sovétríkjanna. Forsetar þingsins kváðust hafa sent öll þessi plögg til þingflokkanna og óskað eftir svari sem fyrst, og þann 22. marz svaraði þingflokkur okkar sósíalista á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:
„Þingflokkur Sameiningarflokks alþýðu, Sósíalistaflokksins, hefur tekið heiðrað bréf yðar, dags. 17. marz, til umræðu og samþykkt að svara því á þessa leið:
Þingflokkurinn álítur, að Alþingi beri að fagna þeirri yfirlýsingu æðsta ráðs Sovétríkjanna, sem fylgdi með bréfi yðar, og frumkvæði þess ráðs um, að löggjafarþing þjóðanna komi á samvinnu sín á milli um að efla frið og vinsamlega sambúð þjóðanna.
Álítur þingflokkurinn rétt, að Alþ. sendi æðsta ráði Sovétríkjanna slíkt svar og tjái sig reiðubúið til að skiptast á þingmannasendinefndum við Sovétríkin. Teljum vér æskilegt, að fulltrúar þingflokkanna fái hið fyrsta að mæta á fundum með forsetum Alþingis til þess að ræða svar Alþingis við orðsendingu æðsta ráðsins og nánara fyrirkomulag á sendingu íslenzkrar þingmannanefndar og boð sovétþingmanna hingað.
Virðingarfyllst “
(Undirskriftir.)
Nú er upp undir mánuður liðinn síðan þetta svar var sent, og við höfum enn þá ekki fengið neitt svar við þessum tilmælum okkar, og ég vildi nú beina þeirri fsp. til hæstv. forseta, hvort aðrir þingflokkar séu þegar búnir að svara og hvort ekki mætti búast við, að fulltrúar þingflokkanna gætu sem fyrst mætt til þess að ræða um, hvernig Alþ. bregzt við þeirri málaleitan, sem okkur þarna barst. Það fer vafalaust brátt að líða að þinglokum, og væri þess vegna æskilegt, að við gætum í tæka tíð borið saman ráð okkar um, hvernig ætti að svara þessu vinsamlega boði.