13.12.1954
Sameinað þing: 26. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 2050 í B-deild Alþingistíðinda. (3256)

Afgreiðsla mála úr nefndum

Haraldur Guðmundsson:

Herra forseti. Einhvern fyrstu daga þingsins bárum við Alþýðuflokksmenn fram till. til þál. á þskj. 17 um varnarsamninginn milli Íslands og Bandaríkjanna. Skömmu síðar var ákveðin ein umr. um þessa till., en síðan hefur hún ekki komið til meðferðar í þinginu. Nú er fast liðið að jólafríi, og ég hef heyrt sagt, að þing komi ekki saman aftur fyrr en í febr., og vildi því mjög eindregið mega mælast til þess, að hæstv. forseti sæi sér fært að taka þessa till. til umr., áður en jólafríið hefst.