11.03.1955
Sameinað þing: 45. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 2059 í B-deild Alþingistíðinda. (3275)

Varamenn taka þingsæti

Frsm. (Gunnar M. Magnúss):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur falið mér að mæla hér nokkur orð, um leið og frá því er skýrt, að Guðmundur Í. Guðmundsson hefur tilkynnt hv. Alþ., að hann geti ekki sinnt þingstörfum um tíma. Þess er óskað, að varamaður hans, Kristinn Gunnarsson fulltrúi í Reykjavík, sem hefur fyrsta varauppbótarþingsæti Alþfl., taki sæti hans hér á þinginu.

Kjörbréfanefnd hefur litið yfir og athugað kjörbréf Kristins Gunnarssonar og hefur ekkert við það að athuga og leggur því til, að hann taki hér sæti á þingi í fjarveru Guðmundar Í. Guðmundssonar.