17.12.1954
Neðri deild: 40. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 2069 í B-deild Alþingistíðinda. (3312)

Þingfrestun og setning þings að nýju

Einar Olgeirsson:

Ég vil leyfa mér, og ég veit, að ég mæli þar fyrir munn allra hv. þdm., að þakka hæstv. forseta góðar óskir í okkar garð. Ég vil enn fremur leyfa mér að þakka honum fyrir góða samvinnu við okkur á því ári, sem nú er að líða, og óska honum svo gleðilegra jóla og góðs nýárs og vona, að við megum sjá hann heilan aftur, þegar við hittumst að loknu jólaleyfi. Ég vil biðja hv. þdm. um að taka undir árnaðaróskir mínar til hæstv. forseta með því að risa úr sætum. — [Dm. risu úr sætum.]