18.12.1954
Efri deild: 43. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 2070 í B-deild Alþingistíðinda. (3315)

Þingfrestun og setning þings að nýju

Haraldur Guðmundsson:

Ég vil fyrir hönd deildarmanna þakka hæstv. forseta hlý orð og góðar óskir. Ég veit, að ég mæli einnig fyrir hönd deildarmanna, þegar ég flyt honum óskir um gleðileg jól og gott nýár, og vona, að við hittumst heilir hér að loknu jólaleyfinu. Gleðileg jól. — [Dm. risu úr sætum.]