18.12.1954
Sameinað þing: 31. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 2070 í B-deild Alþingistíðinda. (3317)

Þingfrestun og setning þings að nýju

forsrh. (Ólafur Thors):

Herra forseti. Forseti Íslands hefur hinn 17. þ. m. gefið út svo hljóðandi forsetabréf:

„Forseti Íslands gerir kunnugt :

Að ég að tilskildu samþykki Alþingis veiti forsrh. umboð til að fresta um sinn fundum Alþingis, 74. löggjafarþings, frá 18. des. 1954, enda verði þingið kvatt til framhaldsfunda eigi síðar en 4. febr. 1955.

Gert í Reykjavík, 17. des. 1954.

Ásgeir Ásgeirsson.

Ólafur Thors.“

Samkv. þessu forsetabréfi lýsi ég yfir samkv. umboði því, sem ég hef lesið, að fundum þessa Alþingis, 74. löggjafarþings, er frestað frá deginum í dag, og verður það kvatt saman til fundar að nýju eigi síðar en 4. febr. n. k.

Ég vil leyfa mér að nota tækifærið til að óska öllum hv. þm. gleðilegra jóla og farsæls árs og þakka fyrir samstarfið á líðandi ári.