18.12.1954
Sameinað þing: 31. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 2071 í B-deild Alþingistíðinda. (3319)

Þingfrestun og setning þings að nýju

Einar Olgeirsson:

Ég vil leyfa mér, og ég veit, að ég mæli þar fyrir hönd allra hv. þm., að þakka hæstv. forseta fyrir þær óskir, sem hann hefur okkur flutt. Ég vil leyfa mér í nafni þm. að óska honum gleðilegra jóla og góðs nýárs og þakka honum fyrir samstarfið á þessu liðna ári; óska honum góðrar heimferðar og að við megum sjá hann hér aftur heilan á húfi, þegar við mætumst eftir áramótin. Vil ég biðja hv. þm. að gera svo vel að taka undir árnaðaróskir mínar til hæstv. forseta með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]