18.12.1954
Sameinað þing: 31. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 2071 í B-deild Alþingistíðinda. (3320)

Þingfrestun og setning þings að nýju

Forseti (JörB):

Ég vil þakka hv. 2. þm. Reykv. fyrir hans hlýju orð í minn garð og árnaðaróskir, og einnig endurtek ég þakklæti mitt til hv. þm. og þakka þeim fyrir að hafa tekið undir óskir hans í minn garð. Megum við allir heilir hittast eftir áramótin, þegar fundir hefjast aftur. Segi ég svo þessum fundi slitið.